Ójá!!! það er geggjaður hiti hérna í
Fellabænum reyndar dáltið hvasst... en það verður að vera svo
maður deyji gjörsamlega ekki úr hita 
Svo á að vera gott veður um helgina eins gott að
að það standist því Mjölla Tómasar og föruneyti eru á leiðinni á
hérað og gera allta vitlaust og er þá ekki betra að hafa
veðrið í lagi.... Ég hlakka mikið til helgarinnar, búin að
bíða eftir henni lengi, ætlum að dajmma á laugardagskveldið og er
öllum frjálst að vera með í því....Ég er nú ekkert búin að vera
bauka neitt sérstakt... gerði svakalega lítið síðustu helgi.. á
föstudeginum man ég ekkert hvað ég gerði, get svo svarið
það er komin með alsheimer á háu stigi... fór og kaus á
laugardeginum og fór svo bara út í sveit með strákunum
mínum...
Á sunnudeginum var bara verið að slappa af og
hafa það kósý ég og Bryngeir áttum tveggja ára afmæli og var bara
ákveðið að halda uppá það í sveitasælunni sem var bara ágætt vorum
eitthvað búin að ákveða fyrst að fara út að borða og eitthvað en
það sem við erum pínu blönk var bara ákveðið þetta og fá líka
þennan fína mat hjá tengdu... Kíktum með Unnar aðeins í fjárhúsin
að skoða litlu lömbin, honum finnst þetta svo minnst spennandi og
svo brá honum alltaf þegar rollurnar jörmuðu og var bara pínu
smeykur....
Ég er svo komin með smá vinnu í sumar ekkert
merkilegt svosem.. verð að skúra í BT þrjú kvöld í viku svo
er ég búin að sækja um á hótel eddu á eiðum .. ætla bara að
vinna hálfan daginn til að byrja með er ekki alveg tibúin að fara
frá litla manninum og eitthvað út að vinna.. er ekki búin að vinna
í 11mánuði bara búin að vera að njóta þess að vera með litla heima
það er svo notalegt, en tími samt til komin að fara aftur á
vinnumarkaðinn en ef ég gæti þá myndi ég frekar kjósa það að vera
bara heima með litla manninum.... hef ekki meira að segja í bili
læt þetta nægja....
Ætla fara í pottinn og hafa það
huggó...
Endilega commenta!!!
HlAKKA TIL AÐ SJÁ YKKUR STELPUR!!!!